
„Upphaflega fjallkonumyndin var gerð af þýskum málara að nafni J. B. Zwecker eftir fyrirsögn Eiríks Magnússonar sem var bókavörður í Cambridge. Eiríkur lýsir táknum hennar svo í bréfi til Jóns Sigurðssonar 11. apríl 1866:
Konumyndin á að tákna Ísland, því hefur hún ískórónu á höfði, sem eldar gjósa upp úr.
Á öxl hennar er hrafninn, Íslands einkennilegasti fugl, Óðins forni vin og skáldanna eftirlætisgoð, fréttafugl mikill og margkunnugur. Yfir sjónum flögrar már, en yfir brimsævi tíma og sögu berast rúnakefli að landi eða upp í fang konunni, og hefur hún þegar náð einu þeirra. Þetta átti svo sem að vera symbolum (tákn) bókmenntalandsins og sögulandsins okkar. Yfir er nótt og stirndur himinn og máninn uppi. Á bak við eru fjöll, tunglroðin á eggjunum.“
Tekið af Vísindavefnum.
Skildu eftir skilaboð:
Grafiksense: Eldri færslur Rss Feed