Siggi og Sól blogga!

Tvenns konar afrek

Síðastliðinn föstudag, 20. febrúar, voru FÍT verðlaunin (FÍT 2009/Grafísk hönnun á Íslandi) afhent í Norræna húsinu. Okkur til mikillar gleði fékk Sveitabrúðkaup viðurkenningu og verðlaun, þ.e. viðurkenningu fyrir myndskreytingarnar og fyrstu verðlaun fyrir fortitlana. En á teiknarar.is má lesa og skoða nánar um niðurstöðurnar úr hönnunarkeppninni. Við óskum öllum vinningshöfum til hamingju :)

Fyrir þá sem hafa ekki séð fortitla Sveitabrúðkaups má finna þá hér:
Fortitlar Sveitabrúðkaups.

Til gamans má geta að við náðum einnig að afreka í cyber space, en síðastliðinn sunnudag náði íslendinga hópurinn okkar að cleara Naxxramas 10 man. Erum afar hreykin af því þar sem helmingurinn af hópnum hafði aldrei áður barist við síðustu þrjá bossana. Hér að ofan má sjá sigurpósuna eftir síðasta boss, húrra fyrir því haha ;)

5 skilaboð fyrir „Tvenns konar afrek“

Árni - February 24th, 2009

IRL: Til hamingju með verðlaunin og viðurkenninguna.

Cyber: OMG /GZ Pwnage!

- February 24th, 2009

TIL HAMINGJU MEÐ NAX!

hitt er líka skítsæmilegt hjá ykkur ;)

- February 26th, 2009

Ég er augljóslega allt of góðhjartaður … ég er búinn að vera með móral yfir þessu skítakommenti mínu síðan ég skrifaði það … þó ég hafi verið að grínast.
Til að laga nístinginn í hjarta mínu og til að koma almennilegum óskum til skila segi ég: Til hamingju bæði tvö með FÍT og Nax! Bæði afrek, sitt í hvorum heiminum. :)
*púff*

Hermann Hermann Hermann - February 26th, 2009

Til hamingju med verdlaunin…

Stefán Pétur Sólveigarson - March 2nd, 2009

Já vá maður.. Þvílíkur árangur. Hamingu Siggi og Sól. Já og fjandi er þetta fallegur verðlaunagripur…

Skildu eftir skilaboð:

 

Grafiksense: Eldri færslur Rss Feed