Siggi og Sól blogga!

Jól


Þetta árið var farið upp í Heiðmörk að ná í jólatré fyrir Neshagann. Addi Óli, Hrafnkell Orri, Siggi Orri og Tóti afi fóru í leiðangur með snjó upp á hné og leituðu í nærri tvo tíma að hinu fullkomna jólatréi sem svo loksins fannst, stórt og glæsilegt!


Tréð var sagað niður…


…og síðan dregið inn í bíl.


Trénu var síðan komið fyrir inn í stofunni á Neshaganum. Það tók smá tíma að fá tréð til að standa beint og voru því sumir orðnir óþreyjufullir að fá að byrja að skreyta, en á neðstu greinunum má sjá skraut sem hrafnkell raðaði og voru menn sammála um að tréð væri í raun bara fullkomið svona :)


En síðan tókst loks að fá tréð til að rétta úr sér…


…og þá fékk hrafnkell að hengja jólaskraut á efstu greinarnar líka :)


Við óskum öllum gleðilegra jóla ;)

1 skilaboð fyrir „Jól“

- December 27th, 2008

Mikið er þetta fínt tré.
Ég veiddi líka tré, en bara í Blómaval. Það var ekki alveg jafn fínt. :P En samt krúttlegt.
Kannski getum við leyft þeim að hittast og leika sér eftir jól?

Skildu eftir skilaboð:

 

Grafiksense: Eldri færslur Rss Feed