Posted on January 27th, 2009 by Siggi og Sól. Filed under Uncategorized.
Fluttum okkur í sveitina síðastliðinn þriðjudag, upp í sumarbústað fjölskyldu Sigga, og vorum þar í viku. Þar var kalt og vatnið frosið í leiðslunum en við létum það ekki á okkur
fá heldur nýttum okkur vatnið í læknum og hituðum bústaðinn upp með rafmagnsofnum
og arineld.

Við dúðuðum okkur upp og klæddum okkur í gúmmístígvél og fórum í langa göngutúra um landið og meðfram fjörunni.

Í einum göngutúrnum okkar sáum við sel í firðinum, en hann virtist hafa séð okkur á undan og var mikið að skoða okkur.

Smá close up af snoppunni á honum haha

Hann synti meðfram fjörunni í sömu átt og við gengum og var augljóslega mjög forvitinn.

Endaði með því að hann kom alla leið upp í fjöruna og kom sér vel fyrir á steini þar sem hann lá og pósaði fyrir okkur. Náðum þó ekki nógu góðum myndum því þarna var orðið svo dimmt, en hann var alveg ósmeykur og kippti sér ekkert upp við það þótt við værum að vaða í sjónum rétt hjá honum.
Posted on January 1st, 2009 by Siggi og Sól. Filed under Uncategorized.
Grafiksense: Eldri færslur Rss Feed