Posted on December 24th, 2008 by Siggi og Sól. Filed under Uncategorized.

Þetta árið var farið upp í Heiðmörk að ná í jólatré fyrir Neshagann. Addi Óli, Hrafnkell Orri, Siggi Orri og Tóti afi fóru í leiðangur með snjó upp á hné og leituðu í nærri tvo tíma að hinu fullkomna jólatréi sem svo loksins fannst, stórt og glæsilegt!

Tréð var sagað niður…

…og síðan dregið inn í bíl.

Trénu var síðan komið fyrir inn í stofunni á Neshaganum. Það tók smá tíma að fá tréð til að standa beint og voru því sumir orðnir óþreyjufullir að fá að byrja að skreyta, en á neðstu greinunum má sjá skraut sem hrafnkell raðaði og voru menn sammála um að tréð væri í raun bara fullkomið svona :)

En síðan tókst loks að fá tréð til að rétta úr sér…

…og þá fékk hrafnkell að hengja jólaskraut á efstu greinarnar líka :)

Við óskum öllum gleðilegra jóla ;)
Posted on December 16th, 2008 by Siggi og Sól. Filed under Uncategorized.

Í morgun fluttum við okkur inn á nýju vinnustofuna okkar sem er á 3. hæð á Laugarveginum. Þar deilum við saman skrifstofuherbergi, við og Þórhannes, pabbi Sigga. Á myndinni hér að ofan má sjá skrifborðin okkar og hvernig er um að að lítast þegar staðið er í dyragættinni á herberginu :)

Þessi mynd er síðan tekin frá hinum endanum, við gluggann, og þá sést skrifborðið
hans Þórhannesar.

Útsýnið út um gluggann er alveg frábært, höfum m.a. sjóinn og Esjuna :)

En það besta er að við erum alein á hæðinni! Öll hin skrifstofurýmin standa auð, við erum þarna bara þrjú og höfum það mjög kósí. Innst á ganginum til vinstri sést inn í eldhúsið sem við höfum aðgang að.

Og það er karla og kvenna salerni….ekki ónýtt að vera með aðgang að salerni sem er ekki fyrir neinn annan en þig haha :)
Posted on December 8th, 2008 by Siggi og Sól. Filed under Uncategorized.

Með jólasnjónum kemur jólaskapið :) Þessi mynd er tekin út um eldhúsgluggann á Hagamelnum þar sem við eigum heima um þessar mundir.
Posted on December 2nd, 2008 by Siggi og Sól. Filed under Uncategorized.

Fáninn er kominn út, nýjasta verkefnið hans Harðar, bók sem hann ritstýrði, teiknaði, hannaði og gefur út sjálfur. Bókin fjallar um þær tillögur sem almenningur lagði til árið 1914 í tilefni þess að verið var að hanna fánann okkar. Bókin er fræðandi og falleg og augljóslega jólagjöfin í ár! Hægt er að kaupa bókina í hinum ýmsu bókabúðum um allt land, á netinu eða bara beint af höfundinum/hönnuðinum! Á myndinni hér að ofan má sjá Hörð afhenda forsetanum fyrsta eintakið af bókinni. Til lukku Hö :D
Grafiksense: Eldri færslur Rss Feed