Posted on September 27th, 2008 by Siggi og Sól. Filed under Uncategorized.
Það eru þrjár íbúðir í stigaganginum okkar, íbúð A sem er á ground floor, íbúð B sem er íbúðin hennar Evu sem er á first floor og síðan íbúð C sem er á second floor. Á efstu hæðinni býr kona sem við höfum aldrei séð heldur bara heyrt í. Í hvert sinn sem konan er í stigaganginum, þá annað hvort á leiðinni úr íbúðinni eða á leiðinni upp til sín þá er hún að argast út í krakkana sína eða hundinn. Ef börnin eru ekki með læti þá er hundurinn geltanti og konan er stöðugt að skammast í þeim til skiptis. Það besta átti sér samt stað í nótt, klukkan hálf 5 um morguninn, þá hafði konan á efri hæðinni greinilega verið að djamma einhvers staðar og ákveðið að taka nokkra með sér heim í eftirpartý. En þetta hljómaði samt ekki eins og nokkrir heldur heill herskari af fólki, eins og hún hefði hreinlega tekið allt partýið sem hún var í með sér heim. Fólkið þrammaði í stiganum eins og fílahjörð og þegar það var loksins komið upp þurftu einhverjir að fara niður…og síðan aftur upp…og aftur niður….og aftur upp. Og viti menn, konan gat auðvitað ekki setið á sér lengi og dró einn gestanna fljótlega fram á gang og fór að rífast og skammast í honum! Okkur Sigga fannst þetta nú bara fyndið þrátt fyrir að þetta héldi fyrir okkur vöku og hlógum að þessu daginn eftir :)
Á hæðinni fyrir neðan okkur býr gömul kona, Eva hefur sagt okkur frá henni þar sem þær eru ágætist vikonur í dag og býðst Eva stundum til að kaupa inn handa henni. Gamla konan er víst fyrrverandi fyrirsæta sem lifði frekar skrautlegu lífi þegar hún var ung en er orðin eitthvað hálf skrítin í dag og virðist aldrei fara út úr húsi. Fyrstu nóttina okkar í íbúðinni sváfum við lítið því að sjónvarpið hjá gömlu konunni var í gangi alla nóttina og langt fram á dag daginn eftir og það hátt stillt að við vissum alltaf hvað var í sjónvarpinu. Við vorum farin að ímynda okkur að konan hafði dáið með sjónvarpið í gangi og að enginn vissi af því þannig að við hringdum í Evu og báðum hana um að tjékka á henni. Kom þá í ljós að gamla konan hafði verið andvaka um nóttina vegna þess að kisan hennar var veik. Hún á voða sæta kisu sem við sjáum stundum út í bakgarðinum, en bara þegar það er sól. Þá kemur hún út og sólar sig.

Hún situr alltaf eða liggur ofan á þessu frauðplasti þegar hún er í bakgarðinum.

Kisan var mikið að spá í hvernig hún gæti komist upp í gluggann til okkar þegar við tókum þessar myndir :)
Og út í allt annað…við keyptum okkur alvöru breskan mat um daginn!

Jaffa cakes, custard og sausages!
Við erum búin að vera að drekka Ginger beer og borða Jaffa cakes í öll mál en það var tilboð í Morrisons, tveir pakkar af Jaffa cakes (sem innihalda 3 kassa) á verði eins! hehe
Og við urðum að prufa að fá okkur alvöru custard…þetta er út um allt og greinilega aðal málið hér í Englandi, en hér fá menn sér heitan súkkulaði pudding með custard ofan á.
Í kvöld verður síðan einn af þjóðarréttum Breta í kvöldmatinn hjá okkur, “bangers and mash” sem er sausages með kartöflumús og brúnni sósu. Pulsurnar eru ekki eins og heima, þær eru hráar þannig að þær eru linar, þær eru í raun bara kjötfars inn í rúllu. Verður spennó að prufa þetta :) Síðan er víst næst á dagskrá að prufa “fish and chips”.
Síðan má ekki gleyma snakkinu!

Bretar er mesta snakk þjóð í heimi og hér er hægt að kaupa snakkpoka sem eru nánast á stærð við svarta ruslapoka! Og það stendur alltaf “better for sharing” á þeim stóru haha
Þangað til næst! :D
Posted on September 21st, 2008 by Siggi og Sól. Filed under Uncategorized.
Það eru liðnar núna u.þ.b. 2 vikur síðan við komum til London og það styttist óðum í að skólinn byrjar, en skólasetningin er 30.september. Við erum búin að vera að skoða fleiri íbúðir, eins herbergja íbúðir í zone 1 og 2 en ekki ennþá fundið þá réttu. Það var reyndar ein sem við skoðuðum sem var æðisleg og okkur langaði mjög mikið til að leigja, eins herbergja íbúð á þriðju hæð í fjölbýli með húsgögnum, frábær staðsetning í zone 2 með strætóstoppi beint fyrir utan…en þá var eitthvað fólk sem hafði skoðað íbúðina á undan okkur sem var búið að taka hana :( En svona er þetta, fyrstu kemur, fyrstur fær. En þetta gaf okkur samt von um að það virðist vera hægt að finna íbúð sem er eins og við látum okkur dreyma um :) það er nóg af íbúðum í boði, það er bara spurning um að lenda á þeirri réttu og vera fljótur að því!
En við erum búin að hafa það alveg yndislegt hérna í íbúðinni hennar Evu, sú íbúð er rosalega flott og kósí. Hér koma nokkrar myndir frá henni og götunni sem hún er í.

Bláa hurðin er útidyrahurðin hjá okkur, íbúð B :)

Svona lítur húsið út.

Hér má sjá eldhúsborðið, þarna sitjum við og borðum morgunmat eða kvöldmat. Erum orðin rosalega dugleg að elda, elduðum inverskan kjúklingarétt í gær…mmmm

Séð út um eldhúsgluggann inn í bakgarðinn. Þarna má líka sjá blómin hennar Evu sem Siggi sér um að vökva, Sól má það ekki því að blóm lifa ekki lengi í hennar umsjá.

Út um eldhúsgluggann sjáum við líka stofugluggann hjá nágrannanum okkar, við getum alltaf séð hvenær hann er að horfa á sjónvarpið. Sést ennþá betur á kvöldin….það er ekki það að við séum að gluggagægjast, glugginn á eldhúsinu er bara svo stór og gluggi nágrannans er útsýnið :)

Einn daginn sagði Siggi: “Glætan! Það er beinagrind undir rúminu okkar!” Hljómaði eins og grín en honum var alvara. Frekar fyndið að vita af henni undir rúminu, núna er ástæða til þess að vera myrkfælinn á næturnar og þora ekki að kíkja undir rúmið hehe :)

Það er ósýnilegur maður sem býr með okkur í íbúðinni, en hann er í hinu svefnherberginu sem við sofum ekki í. Hann situr allan daginn upp í rúmi og reykir sígarettur, en það er alltaf dauf reykingarlykt inn í herberginu. Skugginn hans sést mjög greinilega á þessari mynd, sérstaklega í speglinum!

Þetta er gatan okkar, Caledonian road.

Og þetta er local shoppið okkar, Londis, þar sem við kaupum vínberjadjús og dr.pepper.

Urðum að setja þessa mynd með, hún er tekin inn í Morrisons, matvöruverslunin þar sem við kaupum alltaf allan mat. Af hverju að fá sér Múslí þegar þú getur fengið Fruss…lí?

Þessi mynd er tekin út um stofugluggann.

Undergroundið okkar, ef vel er að gáð má sjá ljósin í lestinni sem er að koma inn í göngunum.

Fórum í labbitúr um daginn inn í almenningsgarð sem er hér í nágrenninu. Lentum þar í sprengjuárás en trén eru núna að fella hnetur sem eru klæddar inn í broddgelti! Örugglega ekki gott að fá þetta í hausinn.

Hér má sjá broddgelti sem hanga ennþá í trénu.
Annars þá bíðum við bara spennt eftir því að skólinn byrjar. Við setjum síðan inn myndir frá skólanum og ef við skildum finna íbúð þá verður það sett strax inn á bloggið :)
Bless í bili!
Posted on September 14th, 2008 by Siggi og Sól. Filed under Uncategorized.
Þá erum við flutt til London og hér verður bloggað um ýmislegt sem drífur á daga okkar hér úti :) Við erum ekki komin með íbúð ennþá en við erum í óða önn að leita og höfum ekki gert mikið annað síðan við komum út. Það er ýmislegt í boði og ýmislegt sem við höfum skoðað hingað til, t.d. íbúðir sem litu rosa vel út og allt spikk og span en allt of litlar, minni en Stúfholtið!! sem er ótrúlegt. Við höfum líka séð íbúðir sem voru ekki bara minni en Stúfholtið heldur svo skítugar og morknar að hamstur myndi ekki einu sinni sætta sig við að búa þar.
Við erum líka búin að lenda í nokkrum “svindlurum” og fólki sem við vorum ekki viss hvort að væru svindlarar eða bara skrítið. Við áttum til dæmis að fylla út umsókn sem sjá má hér að neðan. Síðasta spurningin á umsókninni varð til þess að við hættum að tala meira við þetta fólk. Takið líka eftir því hvernig textinn er skrifaður efst og líka slagorðinu í endann haha. En við erum ekki búin að missa móðinn ennþá, við erum vongóð og höldum áfram að leita :) Við erum núna í íbúðinni hennar Evu, sem er dóttir vinkonu mömmu Sólar og á heima í London, við fáum að vera þar til bráðabirgða á meðan við leitum.

En annars… þá munum við blogga aðallega um mat í þetta sinn.

Við verðum að sýna kökuna sem mamma Sólar bakaði handa okkur í kveðjumatnum heima, hún var svo flott…og hún var ýkt góð! :)

Þegar við komum til London var klukkan orðin svo margt að það var allt lokað nema
local búðin sem er beint fyrir utan íbúðina hennar Evu. Búðin er lítil og ekki með mikið úrval þannig að við fundum okkur kvöldmat að hætti fátæka stúdentsins, ravioli og spaghetti í dós…

keyptum líka þennan snilldar djús, sem er bara úr vínberjum, ekkert plat…ekkert smá góður, minnir meira að segja smá á rauðvín á bragðið nema bara miklu betra :) Í bakgrunninn má sjá hina flóknu eldamennsku sem átti sér stað þegar myndin var tekin…

En með því að blanda raviolinu og spaghettinu saman og drissa smá osti yfir var þetta orðinn barasta dýrindis máltíð ;)
En við erum búin að finna rosa fínar matvöruverslanir sem eru hér í nágrenninu, Eva benti okkur á hvar er ódýrast að versla inn og hvar er t.d. hægt að fá ódýra og góða ávexti :)
Segjum þetta gott í bili, setjum inn fleiri myndir næst :D
Grafiksense: Eldri færslur Rss Feed