Og svo ein eftir Adda bróðir hans Sigga:
2 skilaboð - June 28th, 2009

„Upphaflega fjallkonumyndin var gerð af þýskum málara að nafni J. B. Zwecker eftir fyrirsögn Eiríks Magnússonar sem var bókavörður í Cambridge. Eiríkur lýsir táknum hennar svo í bréfi til Jóns Sigurðssonar 11. apríl 1866:
Konumyndin á að tákna Ísland, því hefur hún ískórónu á höfði, sem eldar gjósa upp úr.
Á öxl hennar er hrafninn, Íslands einkennilegasti fugl, Óðins forni vin og skáldanna eftirlætisgoð, fréttafugl mikill og margkunnugur. Yfir sjónum flögrar már, en yfir brimsævi tíma og sögu berast rúnakefli að landi eða upp í fang konunni, og hefur hún þegar náð einu þeirra. Þetta átti svo sem að vera symbolum (tákn) bókmenntalandsins og sögulandsins okkar. Yfir er nótt og stirndur himinn og máninn uppi. Á bak við eru fjöll, tunglroðin á eggjunum.“
Tekið af Vísindavefnum.
Skildu eftir skilaboð - June 17th, 2009
Mix Mix Mix Mix Mix la la la la la la la

„Eftir “Zyggy-zaggy” taka Stjörnumenn lag úr Mix-auglýsingu sem er í spilun þessa dagana. ,,Þetta er bara stemning. Ég hef alltaf stjórnað þegar við tökum Zyggy-Zaggy og síðan kom Bjarni markvörður með Mix lagið og það er orðinn hefð að við tökum þetta alltaf eftir sigurleiki. Mixið er flott, þetta er stemningslag,” sagði Jóhann.“
Sjá http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=76060 :)
3 skilaboð - May 19th, 2009

Mix er komið aftur með upprunalega bragðinu og í tilefni að því lét Ölgerðin búa til auglýsingu sem er einmitt nýjasta verkefnið hans Sigga. Sumir kannast kannski við dansandi hausana en auglýsingin er byggð á eldra verkefni Sigga, Quicken, þar sem Siggi sjálfur, Nicole, Hörður og ég (Sól) eru aðal stjörnurnar! :D
Hér má sjá Mix auglýsinguna, endilega kíkið á! :)
1 skilaboð - May 14th, 2009

Í dag hefjast Hönnunardagar undir heitinu HönnunarMars þar sem ýmsar sýningar og viðburðir verða í gangi dagana 26.–29. mars. Meðal annars verður nýjasta verkefnið hans Stebba, spilið Ragnarök, til sýnis laugardag og sunnudag (opið 12:00–18:00) í verslunarhúsnæði að Laugarvegi 7 (ská á móti gömlu Nike búðinni sem svo margir muna eftir :) ) Spilið er borðspil og er byggt á hugmyndafræði Norrænnar goðafræði og var ég (Sól) þess heiðurs aðnjótandi að fá að sjá um allar myndskreytingar og grafík fyrir spilið. Ragnarök er þó ennþá í miðri fæðingu, það er komin svarthvít prótótýpa af því sem mun verða til sýnis og geta gestir og gangandi fengið að prufa að spila það. Við hvetjum alla til að koma og kíkja því spilið er enn í mótun og allar ábendingar vel þegnar! :)
Hér má sækja dagskrá HönnunarMars og lesa sér nánar til um hátíðina.
2 skilaboð - March 26th, 2009

Síðastliðinn föstudag, 20. febrúar, voru FÍT verðlaunin (FÍT 2009/Grafísk hönnun á Íslandi) afhent í Norræna húsinu. Okkur til mikillar gleði fékk Sveitabrúðkaup viðurkenningu og verðlaun, þ.e. viðurkenningu fyrir myndskreytingarnar og fyrstu verðlaun fyrir fortitlana. En á teiknarar.is má lesa og skoða nánar um niðurstöðurnar úr hönnunarkeppninni. Við óskum öllum vinningshöfum til hamingju :)
Fyrir þá sem hafa ekki séð fortitla Sveitabrúðkaups má finna þá hér:
Fortitlar Sveitabrúðkaups.

Til gamans má geta að við náðum einnig að afreka í cyber space, en síðastliðinn sunnudag náði íslendinga hópurinn okkar að cleara Naxxramas 10 man. Erum afar hreykin af því þar sem helmingurinn af hópnum hafði aldrei áður barist við síðustu þrjá bossana. Hér að ofan má sjá sigurpósuna eftir síðasta boss, húrra fyrir því haha ;)
5 skilaboð - February 24th, 2009
Erum búin að uppfæra vefsíðuna okkar með nýju útliti og nýju dóti.
Endilega kíkið og skoðið :)
5 skilaboð - February 6th, 2009
Fluttum okkur í sveitina síðastliðinn þriðjudag, upp í sumarbústað fjölskyldu Sigga, og vorum þar í viku. Þar var kalt og vatnið frosið í leiðslunum en við létum það ekki á okkur
fá heldur nýttum okkur vatnið í læknum og hituðum bústaðinn upp með rafmagnsofnum
og arineld.

Við dúðuðum okkur upp og klæddum okkur í gúmmístígvél og fórum í langa göngutúra um landið og meðfram fjörunni.

Í einum göngutúrnum okkar sáum við sel í firðinum, en hann virtist hafa séð okkur á undan og var mikið að skoða okkur.

Smá close up af snoppunni á honum haha

Hann synti meðfram fjörunni í sömu átt og við gengum og var augljóslega mjög forvitinn.

Endaði með því að hann kom alla leið upp í fjöruna og kom sér vel fyrir á steini þar sem hann lá og pósaði fyrir okkur. Náðum þó ekki nógu góðum myndum því þarna var orðið svo dimmt, en hann var alveg ósmeykur og kippti sér ekkert upp við það þótt við værum að vaða í sjónum rétt hjá honum.
Skildu eftir skilaboð - January 27th, 2009

Skildu eftir skilaboð - January 1st, 2009

Þetta árið var farið upp í Heiðmörk að ná í jólatré fyrir Neshagann. Addi Óli, Hrafnkell Orri, Siggi Orri og Tóti afi fóru í leiðangur með snjó upp á hné og leituðu í nærri tvo tíma að hinu fullkomna jólatréi sem svo loksins fannst, stórt og glæsilegt!

Tréð var sagað niður…

…og síðan dregið inn í bíl.

Trénu var síðan komið fyrir inn í stofunni á Neshaganum. Það tók smá tíma að fá tréð til að standa beint og voru því sumir orðnir óþreyjufullir að fá að byrja að skreyta, en á neðstu greinunum má sjá skraut sem hrafnkell raðaði og voru menn sammála um að tréð væri í raun bara fullkomið svona :)

En síðan tókst loks að fá tréð til að rétta úr sér…

…og þá fékk hrafnkell að hengja jólaskraut á efstu greinarnar líka :)

Við óskum öllum gleðilegra jóla ;)
1 skilaboð - December 24th, 2008
Grafiksense: Eldri færslur Rss Feed